Mannabreytingar og sameiningarstopp
Nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar á Vestfjörðum eru um margt fréttnæmar og ágætt að gera þær upp nú að þessu tilefni.
Fjórðungsþing á kosningaári fer fram í vikunni og verður þá raðað í ýmis embætti Fjórðungssambandsins og Vestfjarðastofu. Nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar á Vestfjörðum eru um margt fréttnæmar og ágætt að gera þær upp nú að þessu tilefni.
Fyrst er til þess að líta að í þremur sveitarfélögum þar sem áður var óhlutbundin kosning, var nú kosið eftir listum; í Árneshreppi, Súðavík og Reykhólum. Einungis var persónukjör í Kaldrananeshreppi.
Í öðru lagi urðu miklar mannabreytingar. Mér sýnist að um 63% sveitarstjórnarfulltrúa nýs kjörtímabils hafi ekki setið nýliðið kjörtímabil. Þessi hraða endurnýjun í sveitarstjórnum er lítillega meiri en gengur og gerist á landinu. Stjórnmálafræðingar virðast vera á því að þetta sé of mikið, og ég verð að vera þeim sammála.
Auðvitað eru fleiri en ein ástæða fyrir þessari endurnýjun. Ýmsir drógu sig í hlé, aðrir hlutu ekki stuðning sinna flokka til áframhaldandi starfs, og enn aðrir hlutu ekki kosningu íbúanna til að halda áfram.
Með ákveðinni einföldun má segja að Vesturbyggð og Kaldrananeshreppur séu einu sveitarfélögin þar sem sitjandi meirihlutar héldu velli. Í mínu sveitarfélagi, Ísafjarðarbæ, bauð Í-listinn ekki fram og því var óhjákvæmilegt að annar meirihluti tæki við völdum, sem endar á að vera meirihlutasamstarf Framsóknar og óháðra og Viðreisnar. Í Bolungarvík missti Máttur meyja og manna meirihluta sinn í hendur Betri Bolungarvíkur. Í Súðavík, Strandabyggð, Reykhólum og Árneshreppi var listakosning þar sem sveitarstjóra og/eða meirihluta var hafnað.
BB tók saman yfirlit yfir sveitarstjóra og svo virðist sem einn sveitarstjóri muni sitja áfram, Gerður Björk Sveinsdóttir í Vesturbyggð.
Engin sameining á norðurströndum
Á norðurströndum varð svo engin sameining, en degi fyrir kosningar úrskurðaði innviðaráðuneytið að sameiningarkosningarnar skyldu ógiltar.
Felst voru sveitarfélögin á Vestfjörðum 35 um miðja síðustu öld samkvæmt mælaborði um sveitarfélagaskipan á vef Byggðastofnunar, en það yfirlit nær aftur til ársins 1875. Nú liggur fyrir að þau verði áfram átta talsins. Fúlt.
Söguþráðurinn er allur hinn óheppilegasti og ekki til þess fallinn að styðja við eða flýta fyrir nauðsynlegum sameiningum sveitarfélaga á Vestfjarðakjálkanum. Það er alls óljóst hvort gerð verði önnur tilraun til sameininga á svæðinu, og sennilegt að mikil vinna og traust hafi farið fyrir lítið.
Mannabreytingar í Fjórðungssambandinu
Ég er formaður stjórnar Fjórðungssambandsins. Kjörnefnd er nú að störfum við að taka við tilnefningum og gera tillögu fyrir Fjórðungsþing sem haldið verður í vikunni. Nefndin hefur haft snúið hlutverk að endurspegla mannabreytingar í sveitarfélögum á sama tíma og reyna þarf að tryggja að reynsla og þekking fyrri ára fylgi með inn í nýtt kjörtímabil.
Það er því skrýtið að hafa verið fjögur ár í bæjarpólitík og tvö þeirra í hérðaspólitík og vera orðinn meðal þeirra reynslumestu í hópnum. En svona er þetta.
Ég hlakka til samstarfsins við nýja og gamla samstarfsmenn næstu fjögur ár. Helst lengur samt.


